DIPLÓMANÁM

OPIÐ FYRIR FORSKRÁNINGU Í HAUST

Opið fyrir umsóknir í 8 vikna förðunarnám sem hefst 19.ágúst

Kennsla fer fram mánudaga-fimmtudaga.

Í boði er Dagskóli kl. 09:00-13:00 Kvöldskóli kl. 18:00-22:00.

Reykjavík Makeup School býður upp á 8 vikna grunnnám í förðunarfræði.

Í náminu er farið yfir öll helstu undirstöðuatriði í förðun og að loknu námi útskrifast nemendur með diplóma í förðunarfræði og starfsheitið förðunarfræðingur/makeup artist.

Námið hentar öllum sem hafa áhuga á förðun, hvort sem það eru byrjendur eða lengra komnir.

FORSKRÁNING 19.ÁGÚST

Í DIPLÓMANÁMI ER MEÐAL ANNARS FARIÐ YFIR:

  • HÚÐUMHIRÐA

    Nemendur fá góða yfirferð á grunnþekkingu í almennri húðumhirðu. Farið er meðal annars yfir hvernig greina má helstu húðtýpur og mikilvægi þess að undir búa húðina áður en hún er förðuð.

  • GRUNNUR Í FÖRÐUN

    Farið er vel í alla grunnþætti förðunar. Það er farið ítarlega yfir undirstöðuatriði góðrar húðvinnu. Nemendur læra mismunandi áferðir, litaleiðréttingu, litaval, hvernig á að vinna með mismunandi andlitsföll og skyggingar. Lagt er áherslu á að sýna nemendum mismunandi aðferðir og tækni.

  • POC FÖRÐUN

    Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og pössum að nemendur okkar fái grunn og reynslu á mismunandi húð- og undirtóna. Farið er vel yfir grunnförðun og augnfarðanir á mismunandi húðtónum.

  • AUGABRÚNIR

    Mismunandi aðferðir við að móta augabrúnir. Náttúrulegar, soap brows, mótaðar ofl.

  • EYELINER

    Mismunandi aðferðir og tækni við eyeliner.

  • VARIR

    Notkun varablýanta og mótun vara, hvernig á að nota sterka liti á varir. Látlausar varir.

  • TILEFNIS FARÐANIR

    Létt förðun, beauty, smokey, halo, soft glam, full glam, cut crease, litrík förðun, drag förðun og margt fleira.

  • BRÚÐARFÖRÐUN

    Farið er vel yfir brúðarförðun, brúðarprufu, hvernig gef ég brúðurinni auka lúxus. Hvernig skal bregðast við aðstæðum, verðlagning ofl.

  • EDITORIAL OG FASHION

    Nemendur læra létta förðun, no makeup makeup, editorial, draping, glossy, monochrome, fashion runway og margt fleira sem nýtist í tískusýningar, myndaþætti og fleira.

  • SJÓNVARPSFÖRÐUN

    Nemendur læra sjónvarpsförðun fyrir konur og karla.

  • SPECIAL EFFECTS

    Nemendur læra grunninn í special effects.

  • DRAG FÖRÐUN

    Nemendur læra og fá að spreyta sig í dragförðun með dragdrottningu Íslands, Gógó Starr!

  • INSTAGRAM FÖRÐUN

    Litrík instagram förðun þar sem „more is more“. Inspo frá Mmmitchell og P.louise.

  • TÍMABILAFARÐANIR

    Farið er yfir farðanir á öllum helstu tímabilum og hvernig er hægt að nútímavæða hvert tímabil fyrir sig.

  • HÁR

    Nemendur læra grunntök í hárgreiðslu frá fagmanni.

  • HVERNIG STARFA ÉG SEM FÖRÐUNARFRÆÐINGUR

    Nemendur fá leiðbeiningar og kynningu á öllum þeim störfum sem hægt er að starfa við sem förðunarfræðingur, ásamt ráðleggingum varðandi sjálfstæðan rekstur og verðlagningu.

  • MARKAÐSSETNING FÖRÐUNARFRÆÐINGA

    Við veitum nemendum mismunandi tól sem gagnast þeim í að koma sér á framfæri og markaðssetja sjálfan sig og leggjum áherslu á að hvetja nemendur okkar áfram.

  • DIGITAL CONTENT CREATION

    Nemendur fá að auki góða kennslu tengda samfélagsmiðlum og efnissköpun á öllum helstu samfélagsmiðlum. Hvernig skal taka myndir til að skara fram úr, taka upp myndbönd og klippa fyrir instagram og tiktok. Leiðbeiningar varðandi instagram stories og margt fleira.

  • SÓTTHREINSUN ÁHALDA OG LÍKAMSBEITING

    Við leggjum mikla áherslu á hreinlæti, sótthreinsun áhalda og líkamsbeitingu.

  • KYNNINGARTÍMAR FRÁ HEILDVERSLUNUM

    Einnig eru heildverslanir með kynningartíma þar sem nemendur fá að kynnast öllum helstu snyrtivörunum á markaðinum og læra á þær. Þetta stækkar tengslanet förðunarfræðinga.

Á meðan náminu stendur verða einnig vísindaferðir og starfskynningar fyrir nemendur.

Nemendur fá glæsilegan förðunarpakka með öllum helstu vörum sem tilvonandi förðunarfræðingar þurfa til að koma sér af stað.

Förðunarpakkinn inniheldur meðal annars vörur frá Makeup by Mario, MAC, Real Techniques, Beautyblender, Estée Lauder, Lancôme, Urban Decay, NYX Professional Makeup, Eylure, Mist & co. og My Kit Co.

Allir nemendur skólans fá sérhannaða professional förðunartösku sem er tilvalin til að ferðast með kittið sitt. Sjá myndband hér að neðan.

Nemendur útskrifast með diplóma í förðun að námi loknu með starfsheitið förðunarfræðingur/makeup artist. Diploman er gefin út á íslensku og ensku. Nemendum verður boðið upp á að taka þátt í skemmtilegum verkefnum og myndatökum á meðan náminu stendur og að námi loknu.

VERÐ 520.000KR.

Innifalið í verðinu er glæsilegur vörupakki sem inniheldur allar þær vörur sem tilvonandi förðunarfræðingur þarf til að byrja. Vörurnar eru sérvaldar af okkur og eru á meðal okkar uppáhalds vara. Glæsilega förðunartösku, námsgögn, ljósmyndir af lokaverkefnum og diplóma í förðunarfræði.

Að loknu námi útskrifast þú með starfsheitið förðunarfræðingur/makeup artist.

ATH! Reykjavík Makeup School býður upp á kreditkortalán hjá Borgun og Valitor í allt að 36 mánuði, einnig kortalaust lán hjá Pei og Netgíró. Einnig er hægt að nýta starfsmenntastyrk stéttarfélaga - tilvalið að hafa samband við sitt stéttafélag og kynna sér málið betur.

FORSKRÁNING 19.ÁGÚST